Hakk og spaghetti

  • 1 laukur, hakkaður
  • 25 g smjör
  • 2 msk ólívuolía
  • paprikukrydd
  • 1/2 fræhreinsað chili, hakkað
  • 3 hvítlauksrif, hökkuð
  • 500 g nautahakk
  • 400 g hakkaðir tómatar (1 dós)
  • 1½ tsk tómatpuré
  • 4 msk tómatsósa
  • 3 msk kálfakraftur (kalvfond)
  • 1 dl sýrður rjómi
  • chili explotion (krydd í kvörn frá Santa Maria)
  • salt og pipar

Hakkið laukinn og mýkið hann í smjöri og ólívuolíu við mjög lágan hita í um 10 mínútur. Saltið, piprið og kryddið með paprikukryddi. Bætið hökkuðu chili og hvítlauk saman við og látið malla aðeins áfram á pönnunni með lauknum. Bætið nautahakkinu á pönnuna. Þegar nautahakkið er fullsteikt er tómötum, kálfakrafti, tómatpuré og tómatsósu hrært saman við.

Látið sjóða við vægan hita eins lengi og kostur er en að minnsta kosti í 30 mínútur. Ef ykkur þykir blandan verða þurr þá bætið þið smá vatni og ólívuolíu saman við. Kryddið með salti, pipar og chili explotion. Að lokum er sýrðum rjóma hrært út í og látin sjóða með síðustu mínúturnar.

Berið fram með pasta og ferskrifnum parmesan. Ef þið eigið ferska basiliku skuluð þið ekki hika við að saxa hana yfir.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit