Fjallabyggð óskar eftir starfskrafti til afleysinga í starf skipulags- og tæknifulltrúa til eins árs.
Fjallabyggð leitar að áhugasömum og framsæknum einstaklingi til að sinna starfi skipulags- og tæknifulltrúa á tímabilinu 1. júlí 2021 – 31. júlí 2022.
Skipulags- og tæknifulltrúi starfar með deildarstjóra tæknideildar að verkefnum á sviði byggingar-, tækni-, lóða- og skipulagsmála.
Starfsvið:
- Umsjón með vinnu við deili- og aðalskipulag.
- Skráningu mannvirkja og lóða í Bygging, skráningarforrit fasteignamats ásamt gerð lóðarleigusamninga.
- Undirbúningi, boðun og afgreiðslu funda skipulags- og umhverfisnefndar, ritar fundi nefndarinnar.
- Skipulagningu og skráningu teikninga á vegum sveitarfélagsins.
- Umsýsla er tengist dýraeftirliti.
- Móttaka erinda til tæknideildar og skráning í málakerfi Fjallabyggðar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Tæknimenntun sem nýtist við starfið.
- Víðtæk tölvuþekking.
- Færni í að vinna með skipulagsgögn og teikningar.
- Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skipulagshæfileikar og frumkvæði við lausn verkefna.
Launakjör eru skv. kjarasamningi Fjallabyggðar við viðkomandi stéttarfélag.
Upplýsingar um starfið veitir: Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar armann@fjallabyggd.is s.464 9100 / 864 1491
Umsóknarfrestur er til og með 4. júní nk. Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skilað í gegnum Íbúagátt- Rafræn Fjallabyggð á www.fjallabyggd.is.
Umsóknum um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá, prófskírteini og stutt kynningarbréf þar sem fram kemur hvers vegna sótt er um starfið og hvernig viðkomandi uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.