Fjarðargangan fer fram á Ólafsfirði dagana 13. og 14. febrúar 2026 og verður í ár haldið upp á 40 ára afmæli viðburðarins.
Snjóalög eru víða á landinu takmörkuð um þessar mundir og miðað við stöðuna eins og hún er í dag reynist ekki unnt að halda gönguna með hefðbundnum hætti. Því hefur verið ákveðið að stefna á að halda hana upp á Lágheiði, í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá Ólafsfirði. Þar er gert ráð fyrir 5 kílómetra hring og boðið verður upp á 5, 10 og 20 kílómetra göngur, auk barnagöngu fyrir yngstu þátttakendurna.
Snjótroðari er kominn upp á heiðina og er unnið að undirbúningi brautarinnar þessa dagana. Skipuleggjendur munu leggja sitt af mörkum til að skapa sem besta umgjörð og stemmningu eftir föngum og vonast til að aðstæður leyfi framkvæmd viðburðarins samkvæmt áætlun.
Drög að dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Föstudagur 13.febrúar
16:00 – 20:30 Sölubásar í íþróttahúsi
16:00 – 18:45 Móttaka keppnisgagna í íþróttahúsinu
19:00 Nætur Fjarðargangan 2026 ræst
Kjötsúpa / grænmetissúpa strax að keppni lokinni Verðlaunaafhending strax að keppni lokinni
Laugardagur 14. febrúar
08:00 – 14:00 Sölubásar í íþróttahúsi
08:00 – 10:30 Móttaka keppnisgagna í íþróttahúsinu
08:00 – 11:00 Smurningsaðstaða í íþróttahúsi (ekki smurbekkir)
11:00 Fjarðargangan 2026 ræst
Kjötsúpa / grænmetissúpa strax að keppni lokinni
15:00 Kaffisamsæti og verðlaunaafhending í Tjarnarborg
Verðlaunað er í eftirfarandi aldursflokkum:
30 km, 17-34 ára, 35-49 ára, 50-64 ára, 65 ára og eldri, kvenna og karla.15 km, þrjú efstu sæti kvenna og karla
Úrdráttarverðlaun verða dregin út í kaffisamsætinu kl 15:00
Skráning er á www.netskraning.is/fjardargangan
Fjarðargangan á facebook



