Félagsmiðstöðin 60+ er opin alla miðvikudaga í sumar kl. 14:00 – 16:00 í dreifnámsaðstöðu í Félagsheimilinu á Hvammstanga, nema annað sé tekið fram.
Boðið er upp á kaffi og kleinur/kex, spjall, spil, smá gönguferð eða leiðsögn.
Dagskrá fyrir næstu miðvikudaga:
8. júlí | Flemming Jessen kemur í spjall, púttæfing og kannski verður spiluð félagsvist? |
15. júlí | Eva-Lena Lohi, sjúkraþjálfi: Gönguferðir og notkun göngustafa, boðið upp á mismunadi vegalengdir/hraða. Ekki er nauðsynlegt að eiga göngustafi en þau sem eiga eru beðin að taka þá með sér. |
22. júlí | Eva-Lena Lohi, sjúkraþjálfi: Gönguferðir og teygjur. |
29. júlí | Pálína F. Skúladóttir verður með stólajóga sem allir geta tekið þátt í. Harpa Ósk Lárusdóttir verður í Nestúni á milli kl. 13-17 og áhugasamir geta fengið að vefa við vefstólinn sem er staðsettur þar. |
5. ágúst | Ragnheiður Sjöfn Jóhannsdóttir kynnir fyrir okkur mismunandi handavinnu (refil-, flettu-, herp-, hvít eða svartsaum, dúkaprjón eða prjónað skraut). |
12. ágúst | Pálína F. Skúladóttir verður með stólajóga fyrir alla og slökun. Gjarnan má taka með sér létt teppi. |
19. ágúst | Handavinna/spil (eftir að ákveða). |
26. ágúst | Endum sumarið með vöfflukaffi og jafnvel tónlist? |