Alls skráðu 3.967 einstaklingar flutning innanlands í febrúar til Þjóðskrár. Þetta er fækkun frá síðasta mánuði eða um 5,9% þegar 4.215 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fjölgun uppá 6,7% þegar 3.717 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.616 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.334 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 329 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 185 innan landshlutans og 104 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 307 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 214 innan landshlutans en 76 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár.