Fylltar tortillur

  • tortilla pönnukökur
  • Philadelphia rjómaostur
  • Filippo Berio pestó
  • hráskinka og/eða salami
  • rauð paprika, skorin fínt
  • rauðlaukur, skorinn fínt
  • hunang
  • furuhnetur
  • tamarin sósa (má sleppa)
  • ostur, t.d. hvítmygluostur, fetaostur eða mozzarella
  • hvítlauksolía (eða önnur olía)

Þurrristið furuhneturnar á pönnu. Þegar þær eru farnar að fá gylltan lit eru þær tilbúnar (passið að þær brenni ekki). Mér þykir gott að hella smá tamarin sósu yfir undir lokin og láta hana sjóða inn í hneturnar. Fyrir 1 poka (ca 70 g) af furuhnetum er passlegt að nota 1 msk af tamarin sósu.

Smyrjið tortillupönukökurnar með rjómaosti. Smyrjið síðan pestó yfir hálfa tortilluna og raðið síðan hráskinku, papriku og rauðlauki yfir. Sáldrið smá hunangi yfir. Setjið ristaðar furuhnetur yfir og nokkrar ostsneiðar. Klemmið vel saman og penslið með hvítlauksolíu. Grillið á báðum hliðum þar til osturinn er bráðnaður.

Frábærar fylltar tortillur
Frábærar fylltar tortillur
Frábærar fylltar tortillur
Frábærar fylltar tortillur
Frábærar fylltar tortillur
Frábærar fylltar tortillur
Frábærar fylltar tortillur
Frábærar fylltar tortillur

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit