Laus er staða framkvæmdarstjóra við Selasetur Íslands. Um er að ræða fullt starf í eitt ár með möguleika á framlengingu.

Selasetur Íslands var stofnað árið 2005 og hlutverk þess er að standa fyrir rannsóknum á selum og náttúrutengdri ferðaþjónustu.

Megin markmið setursins er að efla náttúrutengda ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra, vinna að eflingu selaskoðunar á svæðinu og standa fyrir fjölbreyttum rannsóknum, fræðslu og upplýsingamiðlun um seli við Ísland.

Starfsstöð framkvæmdastjóra er á Hvammstanga sem er fjölskylduvænt samfélag. Sjá vefsíðuna: www.selasetur.is

Í starfinu felst:

• Stefnumótun og stjórnun Selaseturs Íslands
• Öflun rannsóknastyrkja og framkvæmd verkefna á fræðasviðum setursins
• Uppbygging náttúru- og menningartengdrar ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra
• Móttaka gesta og miðlun þekkingar
• Rekstrar- og fjármálastjórnun setursins

Við leitum að einstaklingi með:

• Meistarapróf á fræðasviði sem nýtist til uppbyggingar starfsemi Selaseturs Íslands en doktorsmenntun er æskileg
• Reynslu af stjórnun, rannsóknum og þróunarstarfi
• Leiðtogahæfileika, ábyrgð, frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum

Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. janúar 2021 og er krafist búsetu í Húnaþingi vestra. Umsóknir berist fyrir 1. nóvember 2020 ásamt afritum af prófskírteinum, ferilskrá og nöfnum tveggja meðmælenda.

Umsóknir sendist til Guðmundar Jóhannessonar, gummijo@simnet.is