Verktakar Vörubílafélagsins Mjölnis hafa hafist handa við endurbyggingu Laxárdalsvegar (59) frá sýslumörkum að Innstrandarvegi. Alls er um 7,8 km kafla að ræða.
Samkvæmt áætlunum Vegagerðarinnar verður vegurinn að mestu endurbyggður í vegstæði núverandi vegar með nokkrum lagfæringum á plan- og hæðarlegu. Verður vegurinn aðlagaður að einbreiðri brú yfir Laxá sem ekki stendur til að endurnýja.
Gert er ráð fyrir að verkinu verði að fullu lokið í október 2023.
Í tengslum við verkið hefur verktakinn tekið eldhús og matsal skólahússins á Borðeyri á leigu virka daga á meðan á verkinu stendur. Gert er ráð fyrir að hlé verði gert á vinnunni yfir háveturinn meðan aðstæður til útivinnu eru ekki góðar.
Forsíðumynd sýnir frá framkvæmdum við Laxárdalsveg (59). Mynd: Bogi Kristinsson Magnusen