Vegna Umhyggjudagsins verður frítt í sund í sundlaugum Fjallabyggðar á morgun, laugardaginn 26. ágúst frá kl. 14:00 og 16:00.
Glaðningur fyrir alla krakka sem mæta í sund, á meðan birgðir endast.
Hvað er Umhyggja?
Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra. Umhyggja býður m.a. upp á endurgjaldslausa sálfræðiþjónustu og lögfræðiráðgjöf fyrir foreldra, niðurgreidd námskeið fyrir systkini, fjárstyrki, orlofshús, aðstoð við réttindabaráttu ásamt ráðgjöf til fjölskyldna og fagaðila.
Umhyggja reiðir sig alfarið á styrki frá einstaklingum og fyrirtækjum í samfélaginu. Með því að styrkja Umhyggju gerir þú félaginu kleift að styðja við fjölskyldur langveikra barna.
Þú getur gerst Umhyggjusamur einstaklingur með mánaðarlegum framlögum til Umhyggju með því að fara inn á umhyggja.is.
Fjölbreytt dagskrá á Umhyggjudaginn um land allt
- Frítt í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn kl. 14 til 17 (skráning fyrir boðsmiða)
- Skopp býður börnum að skoppa kl. 12 til 13 (skráning fyrir boðsmiða – ath takmarkað pláss)
- Bakarameistarinn býður börnum Umhyggjusnúð frá kl. 11
- Frítt í sund í yfir 40 sveitarfélögum kl. 14 til 16
- Sambíóin bjóða fjölskyldum á myndina Elemental í Kringlubíó kl. 16 (skráning fyrir boðsmiða – ath takmarkað pláss)
Glaðningur fyrir alla krakka sem mæta í sund eða Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, á meðan birgðir endast.