Primex ehf á Siglufirði hefur gert samstarfsamning við Brakkasamtökin – BRCA Iceland.
Tilgangur samstarfssamningsins er að gefa öllum í Brakkasamtökunum sem greinst hafa með stökkbreytingu í BRCA genum, græðandi vörurnar ChitoCare frá Primex þeim að kostnaðarlausu.
ChitoCare vörurnar eru náttúrulega græðandi og hafa reynst vel í að koma í veg fyrir örmyndun.
Primex Iceland er íslenskt líftæknifyrirtæki frá Siglufirði sem sérhæfir sig í þróun á kítósanvörum fyrir fæðubótarefni, snyrtivörur, græðandi vörur og lækningatæki.