Klukkan 17:00 til 19:00 í dag verður þátturinn Gestaherbergið á dagskrá FM Trölla.
Helga og Palli senda þáttinn út í beinni útsendingu úr stúdíói III í Noregi á FM Trölla.

Þema þáttarins í dag verður árið 1998. Lagalistinn mun því litast töluvert af þessu ártali.

Sjálfsagt finna þau upp á einhverju skemmtilegu til að tala um en ekkert er enn ákveðið.

Hlustið á Gestaherbergið á FM Trölla, á þriðjudögum kl. 17:00 til 19:00.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Einnig má hlusta á netinu, hér á trolli.is, í Spilaranum t.d. í Apple TV og ýmsum nýrri sjónvarpstækjum, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.