Ýmislegt spennandi verður um að vera síðustu daga Listasumars 2023 á Akureyri núna um helgina og vegna karnivals í Listagilinu verður stærstur hluti Kaupvangsstrætis (Listagils) lokaður fyrir bílaumferð frá kl. 14-18 laugardaginn 22. júlí. Þó verður hægt að komast að bílastæði efst í Listagilinu.

Gestum og gangandi verður boðið í hljóðfærasmiðju, á listsýningar og í grímusmíðju. Jafnframt verður boðið upp á dansgólf í Deiglunni og Kaktus. Karnivalið hefst kl.19.30 á föstudag og því lýkur kl. 17.00 á sunnudag.

Auk karnivalsins á laugardaginn verður tónleikaröðin Mysingur V í mjólkurportinu á bak við Listasafnið sem hefst kl. 17.

Stofutónleikar Viktors Orra og Álfheiðar Erlu verða í Davíðshúsi kl. 20 á laugardag og á sunnudag verða lokatónleikar Sumartónleika í Akureyrarkirkju kl.17 en að þessu sinni ætla Ásta Soffía og Sigríður Íva Þórarinsdóttir að spila Íslensk og norsk þjóðlög.

Nánari dagskrá Listasumars má finna á listasumar.is.

Forsíðumynd/ Skipuleggjendur undirbúa skreytingar helgarinnar. Ljósmynd: Gilfélagið.