Bláturnablús er 5. sólóplata Gillons (Gísla Þórs Ólafssonar) og sú fyrsta eftir 6 ára hlé. Upptökur hófust sumarið 2020 og tekið upp með hléum í Stúdíó Benmen fram undir lok ársins 2021. Platan inniheldur 9 lög og texta eftir Gísla Þór Ólafsson og syngur Gísli þau öll og spilar á kassagítar og bassa. Upptökustjóri er Sigfús Arnar Benediktsson, en þeir Gísli og Sigfús hafa unnið allar plötur Gísla saman. Sigfús spilar á rafmagnsgítar, trommur, píanó, hammond-orgel, bassa og hljóðgervla. Í lokalaginu „Engirauð tár“ eru gestasöngvarar í bakröddum, þau Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, Emelíana Lillý Guðbrandsdóttir og Eysteinn Ívar Guðbrandsson.

Mynd á umslagi: Óli Þór Ólafsson.

Platan kemur fyrst í stað út á streymisveitum þann 22. febrúar 2022 og svo á vínyl í apríl.

Gísli hefur gefið út 7 frumsamdar ljóðabækur á tímabilinu 2006-2019 og 5 breiðskífur á tímabilinu 2012-2022. Hann er einnig meðlimur í bandinu Contalgen Funeral, en það band var virkt á árunum 2011-2018 og hefur gefið út tvær breiðskífur.

Lagalisti plötunnar Bláturnablús

Lukkuklukkur

Vertu þér í vil

Tímaglas

Má ekki elska þig

Fíll og köttur

Bláturnablús

Kaðalskikkjur

Á hárréttum tíma

Engirauð tár