Á nýársdag kom út nýtt lag með Gillon (Gísla Þór Ólafssyni) sem nefnist Tímaglas, og verður leikið á FM Trölla í dag, í þættinum Tíu Dropar sem er á dagskrá á sunnudögum kl. 13 – 15.

Gísli, mynd: Hjalti Árna

Lagið er 4. kynningarlag væntanlegrar plötu sem nú er í bígerð í Stúdíó Benmen og mun hún nefnast Bláturnablús.

Hljóðfæraleikur er í höndum þeirra Gillons og Sigfúsar Arnars Benediktssonar, en Sigfús sér einnig um upptökustjórn. Fyrsta plata Gillons, Næturgárun kom út árið 2012 og verður því 10 ára á árinu. Öll lög og textar á væntanlegri plötu eru eftir Gísla Þór Ólafsson.

Hægt er að spila lagið á öllum helstu streymisveitum, en það kemur út í gegnum Dreifir.is.

Spotify-hlekkur