Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af Mama tom yum pork sem fyrirtækið Lagsmaður flytur inn vegna glerbrots.
Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði í samráði við heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Mama
- Vöruheiti: Instant noodles with tom yum pork flavour 60g
- Innflytjandi: Lagsmaður ehf. / Fiska.is
- Best fyrir / Lotunúmer: 28-04-2022 / 1D4SD11
- Framleiðsluland: Thailand
- Geymsluskilyrði: Á þurrum stað
- Dreifing: Verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila henni til verslunar á Nýbýlavegi 6, Kópavogi gegn endurgreiðslu.
Ítarefni
- Fréttatilkynning Lagsmaður ehf
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs