Græn iðnbylting á Íslandi er yfirskrift Iðnþings Samtaka iðnaðarins sem haldið verður í Silfurbergi í Hörpu í dag, fimmtudaginn 10. mars kl. 14.00 – 16.00 að viðstöddum þremur ráðherrum, þingið verður í beinu streymi, sjá hér að neðan.
Ríki heims hafa sammælst um að draga úr losun kolefnis. Íslensk stjórnvöld hafa sett metnaðarfull markmið um kolefnishlutleysi og notkun jarðefnaeldsneytis. Á Iðnþingi að þessu sinni verður rætt um græna nýsköpun og fjárfestingu, græna framleiðslu, græna mannvirkjagerð, græna orku og græna framtíð.
Dagskrá
- Ávörp
- Árni Sigurjónsson, formaður SI
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Græn nýsköpun og fjárfesting
- Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix
- Guðmundur Þorbjörnsson, markaðsþróun Eflu
- Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI
- Græn framleiðsla
- Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem
- Hulda Hallgrímsdóttir, gæðastjóri Össurar
- Margrét Gísladóttir, sérfræðingur hagsýslu- og samskiptasviðs MS
- Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI
- Græn orkuskipti
- Auður Nanna Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri Iðunn H2
- Lárus M.K. Ólafsson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI
- Græn orka
- Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Græn mannvirkjagerð
- Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks
- María Stefánsdóttir, umhverfissérfræðingur hjá Mannviti
- Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins
- Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI
- Græn framtíð
- Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Lokaorð
- Árni Sigurjónsson, formaður SI
Mynd: harpa.is