Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í að byggja anddyri, búningsklefa og tengibyggingu við núverandi sundlaugarbyggingu og íþróttahús á Siglufirði, samtals 292,3 m2 á tveimur hæðum ásamt rifi á tengigangi skv. útboðsgögnum AVH.

Verktími er frá apríl 2022 til síðla árs 2023 en sérstaklega er bent á að frávikstilboð eru heimil m.t.t. þess hvernær verkinu verði lokið.

Helstu magntölur eru:

Gröftur      1.200 m3
Steypumót      1.400 m²
Steypustyrktarstál    10.000 kg
Steinsteypa          190 m3
Kerfisloft          260 m²
Málun         600 m²
Flísalögn samtals         600 m²

Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda á netfangið avh@avh.is og verða þau afhent frá og með  8. mars nk.

Tilboð skulu berast rafrænt á netfangið avh@avh.is fyrir kl. 13:00 þriðjudaginn 29. mars og verða tilboðin opnuð kl. 13:30 sama dag í ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Bjóðendum mun gefast kostur á að fylgjast með opnun tilboða á fjarfundi óski þeir þess.

Engin tilboð bárust í viðbyggingu íþróttamiðstöðvar Siglufjarðar

Mynd/Fjallabyggð