Hver kannast ekki við að þurfa að víkja fyrir gróðri sem oft á tíðum hefur vaxið út fyrir lóðarmörk yfir sumartímann. Ekki lagast það þegar veturinn gengur í garð og snjóþungar greinar byrgja sýn.

Dalvíkurbyggð vill góðfúslega minna íbúa á að snyrta runna og trjágróður á sínum lóðamörkum. Töluvert hefur borist af ábendingum þar sem bent er á að víða vex gróður langt út á gangstéttar í sveitarfélaginu og hindrar bæði sýn og umferð. Getur þetta valdið óþægindum og jafnvel hættu fyrir þá sem leið eiga um gangandi, hjólandi og akandi. Passa þarf einnig að gróður byrgi ekki sýn á umferðarskilti eða götulýsingu.

Samkvæmt 7.2.2. gr. Byggingarreglugerðar nr. 112/2012 er lóðarhöfum skylt að halda vexti trjáa eða runna innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki er sveitarfélaginu heimilt að láta klippa gróðurinn á kostnað lóðarhafa að undangenginni viðvörun.

Dalvíkurbyggð vill því hvetja alla garðeigendur til þess að huga að þessu og snyrta gróðurinn fyrir 25. ágúst en eftir þann tíma má búast við því að gróður verði fjarlægður á kostnað eiganda.