Slökkvilið Fjallabyggðar fékk tilkynningu um gróðureld nærri Dvalarheimilinu Hornbrekku í morgun.

Snör viðbrögð urðu til þess að fljótt tókst að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu.

Líkt og slökkviliðið hefur vakið athygli á er gróðureldahætta fyrir hendi.

Hitastig fer hækkandi og gróður er víða mjög þurr.

Fólk er beðið um að hafa þetta í huga og fara að öllu með gát.

Myndir/ Slökkvilið Fjallabyggðar