Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2019-2020. Sjóðnum bárust alls 100 umsóknir og var heildarupphæð umsókna rúmar 219 millj. kr. Veittir voru styrkir til 44 verkefna að upphæð rúmlega 57 millj. kr.

Grunnskóli Fjallabyggðar sótti um styrk í Sprotasjóð fyrir verkefnið “Framúrskarandi skóli-færni til framtíðar” og hlaut styrk upp á eina milljón.

Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk sjóðsins að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

Áherslusvið sjóðsins að þessu sinni voru:

  • Efling íslenskrar tungu
  • Lærdómssamfélag í samvinnu innan eða milli kerfa
  • Færni til framtíðar

Heildarumsóknir til sjóðsins skiptust eftirfarandi milli skólastiga: Verkefni í leikskólum 19, í grunnskólum 54, í framhaldsskólum 10 og þvert á skólastig 17 umsóknir (þar af var 1 umsókn frá leik- grunn- og framhaldsskólastiginu, 13 umsóknir frá leik- og grunnskólastiginu og  3 umsóknir frá grunn- og framhaldsskólastiginu).

Hér má sjá yfirlit yfir þau verkefni sem hlutu styrk