Matvælastofnun varar við neyslu á Holta/Kjörfuglskjúklingi með rekjanleikanúmeri 005-18-84-3-01 vegna gruns um salmonellu sem fannst í reglubundinni sýnatöku við slátrun. Reykjagarður, sem framleiðir vöruna, hefur innkallað hana af markaði.

Viðvörunin/innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Kjúklingurinn er seldur undir merkjum Holta og Kjörfugls
  • Vöruheiti: Ýmis
  • Rekjanleikanúmer: 005-18-84-3-01
  • Framleiðandi: Reykjagarður
  • Dreifing: Verslun Krónunnar í Vallakór, Granda, Bíldshöfða, Háholti og Lindum. Verslanir Hagkaupa í Spönginni, Akureyri, Eiðistorgi, Akrabraut og Flatahrauni. Costco, verslanir Nettó í Hafnarfirði og verslanir Iceland í Engihjalla, Hafnarfirði og Vesturbergi.

Neytendum sem hafa keypt kjúklinga með þessu lotunúmeri er bent á að skila vörunni til viðkomandi verslunar eða beint til Reykjagarðs að Fosshálsi 1. 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Magnús Huldar Ingþórsson, framleiðslustjóri Reykjagarðs, í síma 575 6440.