Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum, Suðausturlandi og Miðhálendi vegna norðan hríðar sem skellur á landið í kvöld.

Lögreglan á Norðurlandi eystra segir á facebook síðu sinni, “Ljóst er færð getur spillst í nótt og hvetjum við alla sem hyggjast vera á ferðinni að fylgjast með stöðu mála sem og í fyrramálið áður en lagt er af stað að heiman”.

Vestfirðir Norðan hríð (Gult ástand)
23. nóv. kl. 21:00 – 24. nóv. kl. 05:00
Norðan 15-20 m/s og snjókoma og skafrenningur með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Varasamt ferðaveður.

Strandir og Norðurland vestra
Norðan hríð (Gult ástand)
23. nóv. kl. 23:00 – 24. nóv. kl. 07:00
Norðan 15-20 m/s og snjókoma og skafrenningur með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Varasamt ferðaveður.

Norðurland eystra
Norðan hríð (Gult ástand)
23. nóv. kl. 00:00 – 09:00
Norðan 15-23 m/s og snjókoma og skafrenningur með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Varasamt ferðaveður.

Austurland að Glettingi
Norðan hríð (Gult ástand)
23. nóv. kl. 01:00 – 11:00
Norðan 15-23 m/s og snjókoma og skafrenningur með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Varasamt ferðaveður.

Austfirðir
Norðan stormur og snjókoma (Gult ástand)
23. nóv. kl. 03:00 – 12:00
Norðan 18-23 m/s með snörpum vindhviðum við fjöll. Einnig má búast við snjókomu og skafrenningi með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, en úrkomuminna sunnantil á svæðinu. Varasamt ferðaveður.

Suðausturland
Norðan stormur (Gult ástand)
23. nóv. kl. 03:00 – 12:00
Norðan 18-25 m/s með snörpum vindhviðum við fjöll, hvassast austan Öræfa. Varasamt ferðaveður.

Miðhálendið

Norðan stormur og snjókoma (Gult ástand)
23. nóv. kl. 02:00 – 09:00
Norðan 18-25 m/s og snjókoma og skafrenningur með lélegu skyggni, einkum norðantil. Ekkert ferðaveður.