Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af Sriacha hot chili sauce vegna hættu á að flaskan springi af völdum gerjunar. Innflytjandinn er Víetnam market og hefur fyrirtækið innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Upplýsingar um vöruna bárust Matvælastofnun í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli á markaði.

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að hætta notkun hennar og farga eða skila henni í Vietnam Market, þar sem hún var keypt.

Nánari upplýsingar má nálgast hjá Vietnam Market, Suðurlandsbraut 6, í tölvupósti: info@vy.is.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi lotu:

  • Vörumerki: Tuong Ot Srirhacha
  • Vöruheiti: Sriracha Hot Chili Sauce
  • Nettómagn: 740.0 ml
  • Lotunúmer: H9TMKA 44 33
  • Best fyrir: 01/03/2021
  • Dreifing og innflutningur: Vietnam Market

Skjáskot: MAST