Hafnartún 34 á Siglufirði til leigu
Húsnæðið er einbýlishús á tveimur hæðum. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, stofa, eldhús, tvö salerni, geymsla og þvottahús.
Lýsing á húsnæði
Gengið er inn forstofu á neðri hæð, þar innaf er gangur, tvö svefnherbergi, geymsla, þvottahús og salerni.
Gengið er upp tréstiga á efri hæð hússins, þar er eldhús, stofa og aðgengi út á svalir, baðherbergi og svefnherbergi þar sem hægt er að ganga út á lóð.
Þægilegt og notalegt hús með glæsilegu útsýni.
Aðeins ábyrgir og reglusamir leigjendur koma til greina.