Haki og Huginn gáfu út nýtt lag á föstudaginn. Lagið heitir Ekkert vesen á mér og er unnið með pródúsernum Ásgeiri Orra Ásgeirssyni.
Lagið verður leikið á FM Trölla í þættinum Tíu Dropar sem er á dagskrá alla sunnudaga kl. 13 – 15.
Um Haka
Haki gaf út sína fyrstu plötu OFFLINE árið 2019. Platan var unnin með pródúserunum Whyrun og Slaema.
Á síðast ári sendi Haki frá sér lagið Flýg. Í laginu notar Haki brot úr lagi Bubba Morthens, Velkomin. Lagið er af plötunni Regnbogans stræti sem Bubbi gaf út árið 2019.
Í byrjun árs fékk Haki afhenda gullsmáskífu fyrir yfir 500.000 streymi en lagið er nú komið með yfir milljón streymi.
Lagið á Spotify