Hakkabuff
- 800 gr. blandað hakk (gott er að nota einn bakka af nautahakki og einn af svínahakki og blanda saman)
- 1 dl vatn
- 1 egg
- 1 msk kartöflumjöl
- 2 tsk þurrkað timjan
- 1 tsk þurrkað rósmarín
- salt
- pipar
Rjómasósa
- 3 dl kjötkraftur (vatn og teningur eða fljótandi kraftur)
- 3 dl rjómi
- 1 msk rifsberjahlaup
- sojasósa
- salt
- pipar
- Maizena-sósuþykkir
Blandið hráefninu í hakkabuffið vel saman og mótið stóran bolta úr buffinu. Hitið olíu á pönnu, setjið buffið á pönnuna og fletjið það út. Skiptið buffinu í sneiðar og steikið á báðum hliðum. Buffið þarf ekki að vera steikt í gegn því það mun sjóða í sósunni. Blandið hráefninu í sósuna og bætið því á pönnuna. Leyfið að sjóða við vægan hita í 10 mínútur. Smakkið sósuna til, bætið ef til vill meiri sojasósu, sultu eða setjið smá kraft út í. Þykkið sósuna með Maizena.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit