Kef LAVÍK gaf út nýtt lag í vikunni sem nefnist María (útsett fyrir þrjá) og er önnur smáskífan af væntanlegri plötu sem kemur út í ágúst. Kef LAVÍK gaf út lagið Strobe ásamt JóaP í febrúar.

Lagið verður leikið í þættinum Tíu Dropar á FM Trölla, sem er á dagskrá alla sunnudaga kl. 13 – 15.

Í maí á síðasta ári gaf kef LAVÍK út fjögurra laga EP plötuna Heim eftir 3 mánuði í burtu. Platan var fyrsta útgáfa þeirra sem gefin er út á vegum Öldu Music.

Kef LAVÍK eru þeir Einar Birkir Bjarnason og Ármann Örn Friðriksson og hafa þeir gefið út fimm plötur í fullri lengd.

Lagið á Spotify

Útgefandi:: Alda Music ehf.
Höfundar lags og texta:: Einar Birkir Bjarnason og Ármann Örn Friðriksson