Þátturinn Egg, Beikon og Bakaðar Baunir verður á dagskrá FM Trölla á morgun, föstudaginn 2. maí, kl. 8 að íslenskum tíma.
Stjórnandi þáttarins er Oskar Brown og hann sendir þáttinn út í beinni útsendingu frá Stúdíói 7 á Englandi.
Oskar spilar frábæra tónlist úr öllum áttum, kíkir á forsíður blaðanna, bæði á Íslandi og í Bretlandi, og skoðar veðurspána fyrir helgina.
Hlustið á Egg, Beikon og Bakaðar Baunir á FM Trölla, á föstudagsmorgnum frá klukkan 8 til 10.
FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga og á Hvammstanga og nágrenni.
Einnig má hlusta á netinu, hér á trolli.is, í Spilaranum t.d. í Apple TV og ýmsum nýrri sjónvarpstækjum, og á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com
Minnum einnig á skip.trolli.is sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.