Fyrir 7 árum síðan, eða 1. maí 2018 fór fréttavefurinn Trölli.is í loftið. Forsvarsmenn eru þau Kristín Magnea Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason.
Vefurinn er alhliða frétta-, upplýsinga- og auglýsingavefur fyrir Norðurland. Trölli.is birtir einnig fréttir af landsmálum.
Fjölmargar fréttir Trölla.is hafa vakið athygli og ratað í landsfjölmiðlana þessi 7 ár.
Skrifaðar hafa verið 11.810 fréttir og greinar síðastliðin 7 ár með 25.565 myndum.
Gunnar Smári hefur rekið útvarpstöðina FM Trölla undanfarin 16 ár, sem er með senda í Hrísey, sem sendir út í utanverðum Eyjafirði, Siglufirði og Hvammstanga, og vinnur vel með fréttavefnum. FM Trölli heyrist um allan heim á netinu.
Auk þess vinnur Gunnar Smári við hljóðvinnslu, hljóðupptökur, forritun, nýsköpun og rafeindasmíði, Kristín Magnea sér um fréttavefinn og allt utanumhald þar að lútandi.
Trölli.is þakkar lesendum og auglýsendum fyrir samstarfið þessi ár, og vonar að næstu árin verði ekki síður farsæl.
Forsvarsmenn Trölla.is þakka einnig þeim fjölmörgu sem lagt hafa vefnum lið með skrifum og fréttaábendingum.
Mynd með frétt er af þeim hjónum og var forsíðumynd fréttar um vefinn 1. maí 2018.