Markaðsstofur landshlutanna, í samstarfi við flugfélagið Erni og Isavia, settu nýlega upp Mannamót í sjötta sinn í Kórnum í Kópavogi.
Mannamót er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Gestum á Mannamóti gefst kostur á kynna sér það sem landshlutarnir bjóða uppá.
Þau ferðaþjónustufyrirtæki í Austur-Húnavatnssýslu sem eru á Mannamótinu í Kórnum í Kópavogi í dag eru m.a. Salthús, Spákonuhof, Prjónagleði/Textílsetrið, Vötnin Angling Service, Hitt og Þetta handverk og B&S Restaurant.
Meðfylgjandi mynd er tekin af Eddu Brynleifsdóttur.