Húsfyllir var á aðventustund félaga eldri borgara í Fjallabyggð í Bátahúsinu sl. mánudagskvöld. Um 100 félagsmenn mættu og nutu samverunnar á fyrsta sameiginlega Aðventukvöldi félaganna. Fjallabyggð bauð til stundarinnar og var boðið upp á léttar veitingar í anda jólanna.

Starfsmenn Síldarminjasafnsins sáu svo sannarlega til þess að aðventustundin var vel heppnuð en öll umgjörðin þótt einstaklega jólaleg og falleg.

Anita Elefsen, safnstjóri bauð gestina velkomna og lagði áherslu á samfélagslegt hlutverk Síldarminjasafnsins. Sigríður Ingvarsdóttir, bæjarstjóri flutti ávarp og þá tóku þau Edda Björk Jónsdóttir og Hörður Ingi Kristjánsson lagið af sinni alkunnu snilld. Sannkallaður jólaandi réði ríkjum og mikil ánægja var með samverustundina. 

Sjá fleiri myndir: Hér

Mynd og heimild/ af vefsíðu Fjallabyggðar