Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi Snorragötu á 293. fundi skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar sem unnin er samhliða deiliskipulagi þjóðvega í þéttbýli Siglufjarðar.

Tillagan var kynnt á íbúafundi þann 16. nóvember 2022. Einnig lagt fram minnisblað hönnuðar vegna breytinga á gatnamótum Snorragötu og Norðurtúns þar sem fyrirhuguðu hringtorgi er breytt í T-gatnamót.

Nefndin samþykkti tillöguna og leggur til að deiliskipulagstillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sjá nánar: HÉR

Mynd/samansett