Þetta hús birtist skyndilega þarna á Ásnum fyrir handan fjörð og er svolítið einkennilegt í útliti og snýr ekki beint í austur/vestur eins og önnur hús sem maður sér þarna þegar maður skreppur “yfrum.”
Maður þarf að fara nálægt þessu fallega húsi til þess að sjá formið á því og þegar nær dregur sér maður líka að þarna er bæjarins besta útsýni yfir fjörðinn fagra, það eru gluggar í allar áttir……maður sér Hólshyrnuna í nærmynd skipta um skýja og sólbirtukjóla, skógræktin og nýr glæsilegur golfvöllur blasir við fyrir neðan Skarðsdalinn og síðan sér maður allan bæinn og alla leið út á Siglunes.
Kristján Hauksson og Erla Björnsdóttir eru bæði fædd og uppalin hér á Sigló og þau byggðu þetta dásamlega fallega hús og þegar Kristján stendur á pallinum sunnan við húsið segir hann: “og svo get ég líka skálað við og vinkað mömmu minni henni Gunnu Finna sem liggur hér í nýja kirkjugarðinum rétt hjá.”
Erla býður mér inn í kaffi og góðgæti og bætir við þegar ég stend undrandi yfir stærðinni og öllu útsýninu:
” Hugmyndin að þessu húsi er lánuð frá Svíþjóð og svo aðlagað að okkar hugmyndum og reynslu eftir að hafa byggt 5-6 sumarhús áður”
Það er hátt til lofts, stórir gluggar í allar áttir og það er hægt að ganga út í náttúruna úr öllum herbergjum, meira að segja úr baðherberginu……… Já æfingin skapar meistarann og þetta er þeirra meistaraverk aðlagað að löngun til að eiga góðar stundir í firðinum fagra og ég held að ég láti bara ljósmyndirnar tala sínu máli.
Þetta er stórkostlegt hús og frábærlega staðsett.
Takk fyrir mig og kær kveðja.
Nonni Björgvins