Hversu mikið vatn maður ætti að neyta daglega fer t.a.m. eftir líkamsbyggingu, loftslagi og almennri heilsu. En það er enginn vafi á því að vatn er mikilvægt fyrir líkamann.

Við höfum tekið saman lista yfir átta neikvæðar afleiðinga of lítillar vatnsneyslu.

Á vefsíðu Lifandi vísinda birtist eftirfarandi grein þann 23. júní síðastliðinn um afleiðingar vatnsskorts á mannslíkamann.

1. Skert einbeiting

Heili mannsins er um það bil  90 prósent vatn og ofþornun hefur því gríðarlega áhrif á hann.  Skortur á vatni getur haft áhrif á t.d. ákvarðanatöku, minni og líðan. Vatn skiptir sköpum fyrir eðlilega rökhugsun. Rannsóknir sýna að vökvatap sem nemur aðeins 1-2 prósentum getur dregið úr vitrænni frammistöðu einstaklings; það er að halda einbeitingu, gagnrýnni hugsun og minni.

2. Andremma og munnþurrkur

Ef líkamann skortir vatn framleiðir hann minna munnvatn. Bakteríudrepandi efni eru í munnvatninu sem halda bakteríunum frá því að fjölga sér í munninum með tilheyrandi andremmu. Vatn virkar einnig sem himna sem heldur slímhúð í hálsinum blautum og án þessarar himnu þornar munnurinn upp.

3. Þorsti birtist sem svengd

Þegar þig vantar vökva lækkar blóðsykurinn venjulega vegna þess að þú hefur tæmt glýkógenbirgðirnar þínar. Þetta gerir það að verkum að þú færð þörf fyrir   að ná þér í skjótar hitaeiningar, oftast í formi matar. Rannsóknir sýna að upplifunin á þorsta virðist vera meiri og stöðugri en upplifun á svengd, en einnig að þorsti leiðir ekki endilega til löngunar til að drekka.

Ofþornaður heilinn segir þér aðeins að blóðsykurinn sé lágur og að þú þurfir að fá þér einhvers konar sykur strax. Heilinn segir þér ekki – áður en þú skellir þér í kökuát – að stórt vatnsglas gæti minnkað löngunina í sykur – grímuklætt sem svengd.

4. Hægðatregða og færri salernisheimsóknir

Vatn hjálpar til við að smyrja meltingarfærin og halda þörmum sveigjanlegum og hreinum. Án þessarar smurningar getur hægðatregða, sýruflæði og meltingartruflanir komið fram. Þú ættir helst að fara á salernið á milli fjórum og sjö sinnum á dag og skynsamleg vatnsneysla hjálpar þér til þess.

Með þvaginu skiljast eiturefnin sem myndast í frumum líkamans og skynsamleg vatnsneysla hjálpar þessu ferli. Rannsóknir sýna einnig að hættan á þvagfærasýkingum og hægðatregðu eykst við ofþornun.

5. Höfuðverkur og svimi

Eitt merki þess að þú færð of lítið vatn getur verið höfuðverkur og svimi. Ef þú drekkur of lítið vatn minnkar vökvinn sem umlykur heilann og getur það leitt til höfuðverkjar.

Reyndar sýndi lítil rannsókn frá árinu 2012, sem gerð var á sjúklingum með höfuðverk, að regluleg vatnsneysla létti á höfuðverk sjúklinganna. Ofþornun getur einnig dregið úr súrefnisflæði til heilans því blóðþrýstingur lækkar – og það getur leitt til svima .

6. Verkir í liðum eða vöðvum

Um það bil 80 prósent af liðum og brjóski er vatn. Vatn er því ákaflega mikilvægur þáttur til að viðhalda heilbrigðum og sterkum liðum. Ef líkamann skortir vatn verður ekkert hlífðarlag á milli beina og stökk og högg sem áður voru hættulaus eru skyndilega sársaukavaldandi.

7. Þurrar varir og flögnun húðar

Vatn veitir húðinni teygjanleika. Húðin er stærsta líffæri líkamans og tekur því í sig stóran hluta vatns sem við innbyrðum. Því sést fljótt á húðinni ef þig skortir vatn. Of lítil vatnsneysla gerir það að verkum að þú að svitnar minna og óhreinindi og umframolía hreinsast ekki úr húðinni. Skortur á vatni í lengri tíma getur einnig valdið hrukkum.

8. Hraður hjartsláttur

Skortur á vatni hefur mjög mikil áhrif á hjartað og hjartsláttinn. Við ofþornun verður blóðvökvamagn blóðsins minna sem gerir blóðið seigara. Erfiðara er að dæla seigfljótandi blóði sem leiðir til hraðari hjartsláttar.