Ferðamenn hafa lengi sótt Siglufjörð heim og hefur gistimöguleikum fjölgað á undanförnum árum. Víða er boðið upp á heimagistingar og má finna umsagnir um þær á t.d. Airbnb.is.

Trölli.is skoðaði á dögunum umsagnir og einkunnir á vefsíðunni Booking.com á fjórum gististöðum á Siglufirði.

Þeir gististaðir eru, Hótel Siglunes (áður Hótel Höfn), Salt Guesthouse (áður Hótel Hvanneyri), Sigló Hótel (Keahótel) og The Herring House.

Ekki er lagt mat á annað en upplifun gesta sem pantað hafa í gegnum Booking og gefið umsagnir, um starfsfólk, þægindi, aðstöðu, ókeypis WIFI, mikið fyrir peninginn, hreinlæti og staðsetningu.

Hotel Siglunes

Mynd/ af vefsíðu Booking

Hótel Siglunes er með 8,4 eftir 494 umsagnir.

Lesa umsagnir: HÉR

Salt Guesthouse

Mynd/ af vefsíðu Booking

Salt Guesthouse er með 8,2 eftir 82 umsagnir.

Lesa umsagnir: HÉR

Sigló Hótel

Mynd/ af vefsíðu Booking

Sigló Hótel er með 9,5 eftir 1.265 umsagnir

Lesa umsagnir: HÉR

The Herring House

Mynd/ af vefsíðu Booking

The Herring House er með 9,4 eftir 154 umsagnir

Lesa umsagnir: HÉR