Þann 6. júní barst eftirfarandi spurning frá lesanda í Spurt og svarað á Trölli.is.

“Langar gjarnan að vita hver aðkoma Fjallabyggðar er að sjómannadagshelginni í Ólafsfirði, sbr. https://www.fjallabyggd.is/is/stjornsysla/fjallabyggd/frettir-og-tilkynningar/glaesileg-dagskra-um-sjomannadagshelgina-31-mai-2-juni

Hver aðkoman sé í formi fjárframlaga, aðstöðu, vinnu o.þ.h.”

Skjáskot af spurningunni frá lesanda

 

Eftirfarandi svar barst frá Fjallabyggð og þökkum við fyrir greinargott svar.

 

“1906039 – Fyrirspurn frá lesanda trolla.is – Hver er aðkoma Fjallabyggðar að sjómannadagshelginni.

Á 612. fundi bæjarráðs óskaði ráðið eftir umsögn deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála vegna fyrirspurnar Kristínar Sigurjónsdóttur fh. Hljóðsmárans ehf. dags. 19.06.2019 er varðar nafnlausa fyrirspurn hlustanda Trölla.is um aðkomu Fjallabyggðar að sjómannadagshelginni í Ólafsfirði, aðkomu í fjárframlaga, aðstöðu, vinnu o.þ.h.
Lögð fram umsögn deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála, dags. 04.07.2019 þar sem fram kemur að aðkoma Fjallabyggðar að sjómannadagshelginni hafi verið eftirfarandi.

Menningarstyrkur, samþykktur af markaðs- og menningarnefnd kr. 1.000.000.-
Styrkur í formi afnota af Tjarnarborg kr. 287.000.-
Auglýsing kr. 81.840.-
Rútuferðir kr. 78.035.-
Vinna starfsmanna þjónustumiðstöðvar var engin um helgina, þeir komu að undirbúningi sem var ekki frábrugðinn undirbúningi annarra helga þar sem eitthvað er um að vera í Fjallabyggð.
Samtals er aðkoma Fjallabyggðar að sjómannadagshelginni því kr. 1.446.875.-“

 

TILVALIÐ AÐ SENDA OKKUR SPURNINGU, T.D. VARÐANDI SAMFÉLAGSMÁL OG ÞESS HÁTTAR.

VIÐ ÁSKILJUM OKKUR ALLAN RÉTT TIL AÐ ÁKVEÐA HVORT SPURNINGIN EÐA SVARIÐ VERÐA BIRT.
FARIÐ INN Á: 
AÐ HAFA SAMBAND TIL AÐ BERA FRAM SPURNINGU.

 

Forsíðumynd: Guðný Ágústsdóttir