Hvítlauksbrauðbollur

  • 1 pakki þurrger
  • 1½ bolli vatn
  • 1 msk sykur
  • 80 g rifinn ostur
  • 1 ½ tsk hvítlauksduft
  • 1 tsk salt
  • 1 tsk basilíka
  • 1 tsk óreganó
  • 3 msk olía
  • 4-5 bollar hveiti

Leysið þurrgerið upp í volgu vatni. Bætið sykri, hvítlauksdufti, salti, basilíku, óreganó, olíu og hveiti saman við og hnoðið vel saman. Látið hefast í 30 mínútur á hlýjum stað.

Mótið þrjú snittubrauð eða bollur úr deiginu og látið hefast aftur í 30 mínútur.  Penslið deigið með þeyttu eggi og stráið rifnum osti yfir.

Bakið við 180° í 20-25 mínútur.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit