Boðað er til íbúafundar í Dalvíkurbyggð um framtíðarhlutverk Gamla skóla fimmtudaginn 28. febrúar nk. kl.17.
Fundurinn verður haldinn í hátíðarsal Dalvíkurskóla.
Fyrir fund, kl. 16-17 verður opið hús í Gamla skóla og gefst þá tækifæri til að kynna sér húsnæðið og ástand þess.
Við vonumst eftir líflegri þátttöku í fundinum.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar.