Út er komið splunkunýtt jólalag sem ber heitið: “Jólabærinn minn”.
Lagið er komið í spilun á útvarpsstöðinni FM Trölla.

Ída Irené Oddsdóttir syngur.

Höfundur lagsins er Ólafsfirðingurinn geðþekki Magnús G. Ólafsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Tröllaskaga, TÁT, en Magnús útsetti lagið sjálfur, annaðist undirleik og hljóðritaði.

Textann samdi systir Magnúsar, Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sem búsett er á Dalvík.

Hljóðblöndun annaðist Gunnar Smári Helgason á Siglufirði.

Hér má hlusta á lagið og skoða fallegar jólamyndir frá Ólafsfirði á meðan: