Undanfarin ár hafa fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar sent hlýjar kveðjur til vina, viðskiptavina, vandamanna og hlustenda FM Trölla, og heldur sú fallega hefð áfram þessi jól.
Jólakveðjurnar hafa verið lesnar upp tvisvar á klukkustund, yfirleitt um 10–15 mínútum yfir og 15–20 mínútum fyrir heila tímann, frá 21. desember.
Í dag, á aðfangadag jóla verða kveðjurnar lesnar í heild sinni á FM Trölla kl. 13:00.
Allar kveðjurnar verða einnig lesnar upp í heild sinni, með stöku jólalagi inn á milli.
✨ á jóladag kl. 11:00
✨ á nýársdag kl. 13:00
FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga og á Hvammstanga og nágrenni.
Einnig má hlusta á netinu, hér á trolli.is, í Spilaranum t.d. í Apple TV og ýmsum nýrri sjónvarpstækjum, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com.

