TÓNLEIKAR Á KAFFI RAUÐKU SIGLUFIRÐI Í KVÖLD FÖSTUDAGINN 12. APRÍL!

Kristján Kristjánsson, eða KK eins og flestir þekkja hann, er einn af ástsælustu tónlistarmönnum landsins.

Hann hefur samið og leikið lög inn hljómplötur í áraraðir, samið tónlist fyrir leikrit, bíómyndir og sjónvarpsþætti auk þess sem hann hefur leikið eitt og eitt hlutverk sjálfur. 

Lengi hefur hann þráð að flytja úrval af lögum sínum sem krefjast hljómsveitar, en fram að þessu hefur hann oftast verið einn á ferð með gítar og munnhörpu að vopni.

Nú ætlar KK að láta þennan draum sinn rætast og hefur safnað saman góðum mönnum í föruneyti nú um leið og blessuð sólin hækkar á lofti.

Förunautar KK á vortúrnum eru:

Eyþór Gunnarsson, hljómborð, raddir
Guðmundur Pétursson, ýmsir gítarar, raddir
Sölvi Kristjánsson, bassi, raddir
Kristinn Agnarsson, trommur, raddir

KK og föruneytið verða á Kaffi Rauðku föstudaginn 12. apríl!
Miðasalan er hafin á bæði Sigló Hótel og midi.is