Nemendur í kvennasögu við Menntaskólann á Tröllaskaga hafa það verkefni í þessari viku að setja lög flutt eða samin af konum á Spottifylista. Fjöldi laga er þegar kominn inn á listann. Þar kennir margra grasa, allt frá Bríeti til Birgittu Haukdal, Grílanna og Janis Joplin. Texti á að fylgja þar sem valið er skýrt.
Áður hafa nemendur í þessum áfanga m.a. fjallað um kvennafrídaginn 1975 og kvenkyns rithöfunda og kvenpersónur í bókmenntum. Í stjórnmálafræði er fjallað um stefnur þessar vikurnar og núna eru femínisminn og nýfrjálshyggjan á dagskrá. Verkefni í fyrrgreindu stefnunni snúast meðal annars um Kvennalistann og Kvennaframboðin hér á landi á síðustu öld.
Birgitta Sigurðardóttir kennir kvennasöguáfangann og þar eru 23 nemendur en Hjördís Finnbogadóttir kennir stjórnmálafræðina og þar eru 53 nemendur.