Húnaþing vestra og Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga eru þátttakendur í þróunarverkefni sem gengur út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum.

Opinn kynningarfundur um verkefnið verður haldinn mánudaginn 15. apríl kl. 16:15-17:00 í Félagsheimilinu Hvammstanga og eru íbúar hvattir til að mæta.

Þróunarverkefnið er hluti af aðgerðaáætluninni Gott að eldast sem er samstarfsverkefni þriggja ráðuneyta (heilbrigðis- félagsmála- og fjármála) og fjallar um samþættingu þjónustu við eldri borgara. Nánari upplýsingar um verkefnið.

Öll þau sem láta sig málefnið varða eru hvött til að mæta.