“Drottning íslenskra stóðrétta”, Laufskálarétt, er haldin nú um helgina.

Af því tilefni er margt um að vera á svæðinu um helgina. Fjörið hófst í gærkvöldi með stórsýningu og skagfirskri gleði í Reiðhöllinni Svaðastöðum við Sauðárkrók þar sem hestar, gleði, söngur og glaðlyndir gestir voru í fyrirrúmi. Eftir skemmtun var svo ball með Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar á Mælifelli á Sauðárkróki og í Miðgarði í Varmahlíð þar sem Hljómsveit kvöldsins lék á efri hæðinni.

Smölun fer fram í Kolbeinsdal í dag laugardag og verður stóðið rekið þaðan og í Laufskálarétt upp úr kl. 11:30. Réttarstörf hefjast kl. 13.

Laufskálaréttarballið, fjölmennasta sveitaball landsins, verður svo haldið í Reiðhöllinni Svaðastöðum við Sauðárkrók kl. 23 í kvöld. Hljómsveitin Stuðlabandið ásamt Jónsa í Svörtum fötum sjá um stuðið. Forsala miða er á N1 á Sauðárkróki og 16 ára aldurstakmark er á ballið.

Það verður líka mikið fjör á Hótel Varmahlíð í kvöld þar sem Geirmundur Valtýsson og félagar halda uppi stuðinu fram á nótt.

Á morgun sunnudag er svo tilvalið að koma við á  Bændamarkaði í Pakkhúsinu á Hofsósi. Þar verður boðið upp á fjölbreytt úrval afurða sem framleiddir eru á svæðinu.

Frétt: Gunnar Smári Helgason/Skagafjordur.is