Kl. 15:22 barst aðstoðarbeiðni til lögreglu vegna tveggja ferðamanna, sem voru í sjálfheldu í Hafnarfjalli ofan Siglufjarðar.

Þarna hafði frönsk fjölskylda, hjón og tvö börn þeirra, verið á göngu í Hvanneyrarskál. Leiðir skyldu þegar konan og annað barnið ákváðu að snúa við en maðurinn og 13 ára dóttir þeirra héldu áfram göngu upp fjallið. Þegar konuna fór að lengja eftir að þau skiluðu sér til baka hafði hún símasamband við manninn, sem sagði henni þá að þau væru búin að missa áttir og væru stopp uppi á fjallinu.

Þá var komin þoka og rigningarúði á fjallinu, með tilheyrandi kólnandi hitastigi. Stúlkunni var orðið mjög kalt, enda aðeins í stuttbuxum. Feðginin voru aðeins með einn síma og rafmagnið á honum kláraðist í þessu símtali og náðist því ekki samband við þau aftur.

Aðgerðarstjórn var virkjuð og var sent út allsherjarútkall á björgunarsveitir á þessu svæði, auk þess sem óskað var eftir þyrlu frá Landhelgisgæslunni og aðstoð sérsveitar lögreglu með dróna. Hópar björgunarsveitarfólks héldu þegar á fjallið og hafin var leit með dróna á þeirra vegum. Það var svo um kl. 17:00 sem björgunarsveitarmaður gat staðsett feðginin með dróna, suðaustan við Hvanneyrarhyrnu. Þau voru orðin köld en gátu gengið með björgunarsveitarmönnum niður fjallið eftir að hafa fengið aðhlynningu.

Alls tóku um 75 manns beinan þátt í aðgerðinni. Endirinn var farsæll en þetta mál er áminning um að þegar haldið er til fjalla þarf að gera ráð fyrir síbreytilegu íslensku veðurfari og gæta þess að nægur straumur sé á símum.

Lögreglan þakkar okkar frábæru björgunarsveitum fyrir góða samvinnu í enn einu verkefninu.

Forsíðumynd/ Lögreglan á Norðurlandi eystra