Fimm drengir úr Menntaskólanum á Tröllaskaga eru nú í námsferð í Lettlandi og vinna þar með félögum sínum frá Eistlandi og heimafólki i Ventspils. 

Meðal þess sem á dagana hefur drifið eru jafn ólíkir hlutir og þjóðdansar, bogaskytterí, vefnaður og skoðunarferð í yfirgefna herstöð frá Sovét tímanum.

Verkefnið sem ferðin snýst um kallast DRIL og er styrkt af Nordplus Junior. Það fjallar um menningu og sögu landanna og að vinna saman með margvíslegum verkfærum á netinu. 

Í gær var síðasti dagur ferðarinnar og í dag, miðvikudag halda strákarnir heimleiðis ásamt kennara sínum. 

Myndasafn frá ferðinni


Á myndinni eru boðveiðimenn í Lettlandi
Skoða á vefsíðu MTR