Marinó Flóvent Birgisson er lærður bakari og vann við það í 18 ár hér á árum áður og hefur nú tekið upp sleifina aftur og bakar nú fyrir kaffihús í Reykjavík í hlutastarfi.

Ásamt því að halda úti YouTube rásinni Majó Bakari  ( https://www.youtube.com/majobakari ) sem er á íslensku og að mestu leyti um súrdeigsbakstur.

Trölli.is bendir lesendum á að gerast áskrifendur af YouTube myndböndum Marínós, hann er að stefna á komast upp í 1000 áskrifendur og í dag er hann kominn með 998 áskrifendur svo það vantar aðeins tvo til að ná markmiðinu.

Að þessu sinni birtir Trölli.is Youtube myndband Marinós Flóvents þar sem hann kennir bakstur á súrdeigs pylsubrauðum.

Uppskrift

250ml vatn
150g súr
50g sykur
7g salt
30g smjör
450g hveiti (ekki brauðhveiti)

SJÁ FYRRI UPPSKRIFTIR:

MARINÓ FLÓVENT BAKARI ER ÆTTAÐUR FRÁ SIGLUFIRÐI
MAJÓ KENNIR BAKSTUR FJÖLKORNA SÚRDEIGSBRAUÐS
SÉRBÖKUÐ SÚRDEIGS VÍNARBRAUÐ – MAJO KENNIR BAKSTUR
JÓLA, JÓLA – MAJÓ KENNIR BAKSTUR RANDALÍNU
MAJÓ KENNIR SNÚÐABAKSTUR
MAJÓ BAKAR EPLAKÖKU
PARTÝ BRAUÐ MAJÓ
MAJÓ ÚTSKÝRIR SÚRDEIG
MAJÓ UPPLJÓSTRAR LEYNDAMÁLI
MAJÓ BAKAR SÚRDEIGS BAGUETTE OG RÚNSTYKKI

Forsíðumynd/ skjáskot úr myndbandi