Matvælastofnun varar við neyslu á sænsku sælgæti „S-märke surt skum“, sem heildverslun Core ehf. flytur inn, vegna aðskotarhlutar úr málmi sem fannst í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.
Matvælastofnun fékk upplýsingarnar í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli á markaði og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.
Einungis er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu/best fyrir dagsetningu:
- Vörumerki: Candy people
- Vöruheiti: S-Märke Surt skum 70 g
- Innflytjandi: Core ehf.
- Best fyrir dagsetning: 14-08-2022 M4
- Dreifing: Bónus, Hagkaup, Krónan, Iceland, Krambúðir, Kvikk, 10-11, Extra24, Fjarðarkaup, N1, Olís, Melabúðin og Heimkaup
Neytendur sem hafa keypt tilgreinda vöru eru beðnir um að skila henni í verslun eða á skrifstofu Core Heildsölu að Víkurhvarfi 1, 203 Kópavogi.
Ítarefni
- Fréttatilkynning Core heildsölu ehf.
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs
- Þessum upplýsingum átt þú rétt á – upplýsingaspjald Matvælastofnunar um merkingar matvæla
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook