Samstæða Samkaupa, sem rekur sextíu verslanir undir merkjum Nettó, Kjörbúðarinnar, Krambúðarinnar og Iceland, tapaði tæplega 910 milljónum króna árið 2024, samanborið við 268 milljóna króna hagnað árið 2023, samkvæmt ársskýrslu félagsins.

Þetta kemur fram í umfjöllun Viðskiptablaðsins.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 1.550 milljónum króna í fyrra samanborið við 2.693 milljónir árið 2023 og lækkaði því um 42,4% milli ára.

Rekstrartekjur samstæðunnar námu 41,6 milljörðum króna og drógust saman um 1,8% frá fyrra ári. Framlegð af vörusölu nam 10,2 milljörðum, eða 24,5% af tekjum, sem er lækkun upp á einn milljarð króna frá fyrra ári.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 1.550 milljónum króna í fyrra samanborið við 2.693 milljónir árið 2023 og lækkaði því um 42,4% milli ára.

Hlutafé Samkaupa var aukið um tæpan milljarð króna í upphafi þessa árs.