Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 19,9% frá yfirstandandi ári og verður 12.627 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati Þjóðskrár fyrir árið 2023. Þetta er umtalsvert meiri hækkun en tilkynnt var um fyrir ári síðan þegar fasteignamat hækkaði um 7,4 % á landinu öllu. Við matsgerð var fjöldi fasteigna í fasteignaskrá 213.785.

Mest hækkun á Suðurlandi

Heildarfasteignamat á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 20,2% en um 19,2% á landsbyggðinni. Þar af er mest hækkun á Suðurlandi eða 22,4%, um 19,3% á Vestfjörðum, 18,8% á Suðurnesi og Norðurlandi-eystra, 18,1% á Vesturlandi, 15,2% á Norðurlandi-vestra og um 14,9% á Austurlandi.

Af einstaka sveitarfélögum hækkar heildarfasteignamat mest í Hveragerðisbæ eða um 32,3%, hækkun nemur 32,1% í Sveitarfélaginu Árborg og um 29,3% í Skorradalshreppi. Minnsta hækkun er í Dalvíkurbyggð eða um 8,1% og 9,3% í Dalabyggð og Skútustaðahreppi.

Almennt eru litlar breytingar á aðferðarfræði fasteignamats á milli ára. Aðferð sem tekur á staðsetningaráhrifum atvinnueigna var uppfærð. Aðferð við útreikning fasteignamats á bílastæðum í fjölbýli var einnig endurskoðuð. Núverandi aðferðafræði og ákvarðanataka var styrkt með aukinni gagnameðferð og innleiðingu tóla.

Aðgengilegar upplýsingar á vef

Á vef Þjóðskrár www.skra.is má fletta upp breytingum á fasteignamati milli ára auk þess sem mikil áhersla hefur verið lögð á myndræna og notendavæna framsetningu á nýju fasteignamati. Þannig geta eigendur fasteigna og aðrir bæði kynnt sér breytingar á einstökum eignum sem og þróun á milli ára eftir landsvæðum og mismunandi tegundum eigna. Upplýsingar um breytingar á fasteignamati eru nú settar fram á kortagrunni en auk þess hefur verið birt vefsjá fyrir matssvæði íbúðarhúsnæðis, sumarhúsa og atvinnuhúsnæðis sem sýnir staðsetningu matssvæða og breytingar á milli ára.

Íbúðarmat hækkar mest í Fljótsdalshreppi

Samanlagt mat íbúða á öllu landinu hækkar um 23,6% á milli ára og verður alls 9.126 milljarðar króna, þar af hækkar sérbýli um 25,4% á meðan fjölbýli hækkar um 21,6%.

Almennt er hækkun á íbúðarmati á höfuðborgarsvæðinu 23,6% en 23,7% á landsbyggðinni. Fasteignamat íbúða hækkar mest í Fljótsdalshreppi en þar hækkar íbúðarmatið um 38,9%, hækkunin nemur 36,6% í Sveitarfélaginu Árborg og í Hveragerðisbæ. Minnstu hækkanir á íbúðamati eru í Dalvíkurbyggð þar sem fasteignamat íbúða hækkar um 6,2%. Í Hörgársveit og Skútustaðahreppi hækkar matið um 8,5%.

Fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækkar um 10,2%

Fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækkar um 10,2% á landinu öllu. Hækkun um 9,6% á höfuðborgarsvæðinu en um 11,5% á landsbyggðinni.

Fasteignamat sumarhúsa hækkar um 20,3%

Fasteignamat sumarhúsa fyrir árið 2023 hækkar um 20,3% þegar litið er á landið í heild. Mesta hækkunin er á höfuðborgarsvæðinu þar sem sumarhús hækka um 28,6% en minnst á Norðurlandi-eystra þar sem hækkunin er um 9%.

Fasteignamat sumarhúsa á meðal sveitarfélaga hækkar mest í Langanesbyggð þar sem mat hækkar um 40,6% en mest lækkun er í Dalabyggð en þar lækkar fasteignamatið um 15,2%.

Nánari upplýsingar um fasteignamat 2023

Eigendur fasteigna geta frá 15. júní nálgast tilkynningarseðil um mat á eignum sínum í pósthólf sitt á www.island.is. Langflestar fasteignir eru endurmetnar árlega út frá nýjustu matsforsendum og byggir meðal annars á upplýsingum úr þinglýstum kaupsamningum auk fjölmargra annarra þátta sem hafa áhrif á verðmæti fasteigna. Nýja fasteignamatið miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2022. Það tekur gildi 31. desember 2022 og gildir fyrir árið 2023. Frestur til að gera athugasemdir við nýtt fasteignamat er til 30. desember 2022.